Jæja, þá eru tvær brjálaðar vikur að baki og ég er farin að slaka á og njóta þess að vera til þangað til ég kem heim til að skrifa lokaritgerðina mína. Ég gleymdi alltaf að segja ykkur að lokaverkefnið hefur breyst mikið að undanförnu þar sem hönnunin á tækinu sem ég ætlaði að meta er ekki tilbúin til notkunar. Svo á tímabili var um það að ræða að ég myndi ekki útskrifast á réttum tíma vegna þessa.....en nú er þetta allt að smella og lokaverkefnið mitt mun fjalla um vinnuumhverfi tannlækna og ætla ég að nota sérstaka aðferðafræði (Link analysis) til að skoða hönnunina (layout) á nokkrum tannlæknastofum :) Bara gaman :) En þar sem varla er hægt að tala um tannlækna nema hugsa um sársauka þá ætla ég líka að skoða vinnustellingar þeirra!
En hvað um það þá eru 10 dagar síðan dótið mitt fór héðan frá Lofbró og læt ég fylgja tvær myndir með af því.
Hvar er Þór? Ég flutti svo mikið dót að Þór greyið týndist á bakvið það allt saman!
Bööö! Þarn er hann :) Hann var búin að fara eina ferð á undan þessari!
Þennan dag var Bank Holiday hér í Bretlandi og það var settur upp heilmikill markaður og allskonar leiktæki fyrir börnin. Þór komst þá ekki að húsinu með bílinn.....en við redduðum okkur með því að lánaða trillu á kaffihúsinu á neðri hæðinni til að ferja dótið í bílinn. Þvílíkur munur :)
Svo eru það prófin....úff, hvað þetta var erfiður tími. Þrjú próf í röð, mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Það er ekki hægt að segja annað en að í prófinu í gær þá var fólk komið með bauga niðrá maga því prófið á þriðjudeginum var til kl. 18 og prófið á miðvikudeginum kl. 9 um morguninn....asskoti strembið! Ég las til kl. 1.30 um nóttina og vaknaði aftur 5.50 til að byrja aftur! En hvað um það, þau eru búin og ég hef nákvæmlega enga hugmynd um hvernig mér gekk......markmiðið var bara að ná, það var ekki sett hærra en það svo nú er bara að bíða og sjá hvort það gekk upp!
Eftir prófið í gær var strax farið á pöbbinn, fengið sér vínglas og góðan mat. Hér eru nokkrar myndir af því.


Annabelle, Rita (frá Portúgal), ??? Claire (frá Kanada), Robin (frá Bretlandi) og Damien.
Richie frá Wales. Hmmm....hvað ætli hann sé að hugsa???
Við Annabelle fórum svo heim til mín um kl. 17, fengum okkur smá að borða, drukkum meira og fórum á annan pöbb! Hér eru nokkrar myndir af því.....

Annabelle sæta gella að prófa sólgleraugun mín :)
Við í myndavélakasti :) Ánægðar að vera búnar í prófum :)
Alison og Annabelle :)
Valdís sólbrennda og Nick sæti (frá Grikklandi).......hann er voða skotin í mér ;)
Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni.....ég kem til Íslands á sunnudagskvöldið og norður á þriðjudaginn. Reyndar langar mig nákvæmlega ekkert heim núna, en það er önnur saga!
Sjáumst í næstu viku ;)
8 comments:
Hey jú gordjöss görl (sjitt hvað ég hló að kommentinu)!
Það má ekki líta af þér eitt augnablik, þá ertu bara strokin á nýjar slóðir. Ég skil það mjög vel.
Viltu vera svo væn að senda mér póst á arny.leifs hjá simnet.is, ég þarf að ná í skottið á þér áður en þú kemur heim.
Annars var gámurinn smekkfullur og það þurfti að loka honum með valdi böt em æ bovvered? Never.
Til hamingju með próflokin:)
Hæ Valdís
Til hamingju með að vera búin með prófin.....ooohhh hvað ég öfunda þig, ég geri ekki annað en að lesa fyrir próf þessa daga og svo er ekkert smá gott veður hérna, þannig að þá er það náttúrlega ennþá erfiðara.
En góða ferð heim, og ég treysti á að ég eigi eftir að hitta þig aðeins í sumar.
Kveðja frá DK
Louisa Sif
Hæ sæta stelpa og til hamingju með þetta allt saman - dugleg stelpa :o)
Það væri alveg hreint yndislegt að hitta þig, þar sem við höfum ekki hisst í svo mörg ár.
Knúsí kveðja, Lára
Hola frá heita Íslandi!
Sól og læti í dag, gámurinn kominn til landsins og verður vonandi afgreiddur á morgunn. Heyri í þér.
Hæ hæ... gaman að sjá myndir;) og til lukku að vera búin með prófin;) hlakka til að sjá þig á eyrinni;)
Til hamingju með próflokin :)
Hæ hæ Valdís
Jæja ég er að koma norður 13. - 15. júlí, þannig að ég vonast til að ná í skottið á þér á meðan ég verð þar. Ég er líka búin að láta Stínu vita, þannig að það væri gott ef við gætum allar hist.
Vona að þú sért laus eitthvað þessa helgi.
Hafðu það gott þangað til, hlakka til að sjá þig.
Knús og kossar
Louisa Sif
Post a Comment