Thursday, June 21, 2007

Smá uppdögun

Er ekki kominn tími til að blogga, eða hvað?
Það hefur nú lítið gerst í lífi mínu síðan ég kom heim. Reyndar áttu ónefndir flutningsaðilar og tollarar eitthvað erfitt með að koma gámnum til okkar þar sem þeir voru ekki að gúddera að það væru tvær búslóðir í gámnum á einni tollaskýrslu. NB! Það er boðið upp á það á tollaskýrslunni að skrifa hvort það eru fleiri sendingar í gámnum. Þannig að við þurftum að gera nýjar tollaskýrslur og þetta tók allt sinn tíma. Starfsmaðurinn sem sá um þetta fór svo bara í sumarfrí til útlanda og ekki búinn að leysa gáminn út og við bara biðum og biðum. En nú er þetta allt að koma og ég er sem sagt að keyra á litlum sendibíl til Þorlákshafnar á laugardaginn, gista þar eina nótt hjá Ljúfu og co. og keyra svo aftur heim með allt dótið mitt á sunnudaginn.
Þetta hefur náttúrulega gert það að verkum að ég hef lítið getað gert í lokaverkefninu mínu þar sem allar greinarnar sem ég var búin að prenta út og allar bækurnar mínar voru fastar í gámnum. Annars er ég búin að fara og halda smá kynningu fyrir tannlæknana á verkefninu og búin að gera smá "pilot work" á einni stofunni. Svo ég er aðeins byrjuð. Það verður fínt þegar gagnaöflunin verður búin og ég get farið að sitja niður og pæla virkilega í hlutunum og skrifa um þá. Geri ráð fyrir að gagnaöflunin taki 2-3 vikur (vonandi ekki meira). En við sjáum bara til með það.....ég stefni allavega á það.
Jæja, hef ekki meira að segja í bili
bið að heilsa ykkur.......

2 comments:

Anonymous said...

Hæ Valdís mín

Jæja , gaman að heyra að þú sért laus þessa helgi til þess að hitta okkur Kristínu. Ég tek skærin með mér norður til þess að klippa mömmu og co. þannig að það er ekkert mál að klippa þig líka, reddum því.
Hlakka voða mikið til þess að sjá ykkur skvísur. Það er spurning hvort við ættum að endurtaka svaðalega fylleríið eins og við tókum í keiluhöllinni, hehehe, manstu!!!!!
Jæja bið að heilsa.
P.S var að klára eitt próf í dag, gekk ágætlega og á svo bara eitt eftir, jjjiiibbííí.
En gangi þér vel með verkefnið.

Kveðja Louisa Sif

Anonymous said...

Velkomin aftur heim á klakann og gangi þér vel í ritgerðavinnslunni!
Cheers