Núna er ég búin að vera í vinnunni í heila viku og líkar alveg frábærlega vel :) Fjölbreytt verkefni framundan og mikill lærdómur í sambandi við útboð á verkefnum, pælingar í kostnaði, námskeið og alls konar dót sem mig óraði ekki fyrir að ég myndi einhvern tíma koma nálægt.
En svona er lífið.....það tekur alls konar óvæntar stefnur þegar maður á minnst von á. Fjölskyldan fékk líka aðeins að finna fyrir því í vikunni þar sem pabbi minn liggur nú á sjúkrahúsi og bíður aðgerðar á hjarta. Sá ferill mun taka 3-4 mánuði og megum við þakka fyrir að hjartalæknir hans á Akureyri fylgist vel með honum að ekki er búið að fara verr. Annars vil ég ekki ræða þetta frekar hér á blogginu mínu, þar sem mér finnst það óviðeigandi gagnvart öllum.
Ég vil því enda þetta blogg á því að vitna í vinkonu mína,
Gangið á Guðs vegum....
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Hæ hæ
Var einmitt að bíða eftir að fá að heyra hvernig væri í nýju vinnunni. Frábært að lesa að þér líki svona vel og skemmtilegt að fást við eitthvað nýtt og spennandi.
Ég sendi fallegar hugsanir til pabba þíns.
Bestu kveðjur frá Esbjerg
Selma Björg
Hæ hæ
gott að vel gengur;) knús til þín
kv Stínan
Frabaert ad heyra ad ther liki vel i vinnunni...thetta er spennandi!....og gangi pabba thinum vel...
Cheers
Hæ hæ, hef verið að fylgjast með pabba þínum í gegnum ma og pa, vona svo sannarlega að allt gangi vel. Kveðja Sabína
P.s.og góða skemmtun á Englandi
Hæ skvís
Vonandi gengur allt betra með pabba þinn :-)
Viltu senda mér heimilisfangið þitt, eða númer hvað húsið er, því ég man alveg götuheitið.
Kveðja Louisa
Hello. This post is likeable, and your blog is very interesting, congratulations :-). I will add in my blogroll =). If possible gives a last there on my blog, it is about the MP3 e MP4, I hope you enjoy. The address is http://mp3-mp4-brasil.blogspot.com. A hug.
Post a Comment