Monday, October 29, 2007

Kellingin að flytja......

Já, það er orðið ljóst að kellingin er að flytja í borgina. Ég er komin með vinnu hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen (VST) og byrja að vinna á fimmtudaginn næsta!!
Nú er allt að gerast, ég er að kaupa mér bíl í dag og svo er ég á fullu að leyta mér að íbúð í borginni til kaups......er samt pínu efins hvort ég eigi að kaupa strax......er að hugsa um að sjá til hvernig mér líkar vinnan fyrst. Er það ekki skynsamlegt???
Annars var ég að segja Kristíönu frá því að nú væri ég að flytja til Reykjavíkur og viðbrögðin stóðu ekki á sér hjá dömunni: "Af hverju þarft þú alltaf að vera flytja svona?" Já, þegar stórt er spurt er lítið um svör! Hún hafði nú líka áhyggjur af því að ég þekkti engan í Rvík, en ég gat nú talið nokkra upp sem eru á höfuðborgarsvæðinu :)

Ég, mamma og pabbi erum svo búin að panta okkur flug út í desember. Förum 12. des og verðum alveg til 18. des. Útskriftin er 17. des. Við mamma höfum mestar áhyggjur af pabba því hann nennir örugglega ekki að labba með okkur í allar búðirnar sem við "þurfum" að fara í.

Ég lýsi því hér með eftir karlmanni sem er til í að fara til Bretlands á þessum tíma og sitja á pöbb með pabba meðan við mamma verslum. Pabbi er einstaklega skemmtilegur maður, orðinn soldið gráhærður og hefur gaman af tækjum og tólum. Hann hefur ferðast mikið og elskar jólin, því þá fær hann að skreyta húsið sitt og trén í garðinum með jólaljósunum sínum auk annarra skreytinga!!

5 comments:

Anonymous said...

hey þarf þetta endilega að vera karlmaður! ég er alveg til í að sitja með pabba þínum á pöbb í Englandi... það er örugglega voða voða gaman! til hamingju með vinnuna, bílinn og allt saman mín kæra. Knús og kossar til þín frá mér, Elísa

Anonymous said...

Ég er svo mikið geim að vera með Pabba þínum á pöbb í marga daga í London;) En gaman að heyra frá þér á blogginu mínu. Verðum í bandi við tækifæri.
kv.Sabína

Anonymous said...

Hæ skvís til hamingju með vinnuna og það er bara fínt að búa hérna í borginni hehe. Ég öfunda þig nú ekki að vera að leita að íbúð hérna, þvílíkur frumskógur. Það er nú aldrei að vita nema ég eigi eftir að rekast á þig í borginni. Kveðja Dísa

Anonymous said...

Hæ sæta

TIL HAMINGJU MEÐ NÝJU VINNUNNA!!!!!! já og bílinn......Spennó, spennó......og svo er það bara að finna sér íbúð...hmmm, verst að þú getir ekki leigt af okkur.
Á annars að vera að lesa fyrir próf.....en það er nú miklu skemmtilegra að fara á svona blogg rúnt og ath. hvað er að frétta hjá fólkinu.
Hafðu það gott Valdís mín, ég sendi þér bráðlega mail, það er bara búið að vera svo brjálað að gera hjá mér.

Kvðeja frá DK

Louisa

Brása said...

Það er greinilegt að vinkonur mínar hafa miklar mætur á honum pabba mínum. Mér fannst bara svo tilvalið að auglýsa eftir karlmanni og slá þá tvær flugur í einu höggi ;)
Kveðja,
Brása