Hellú!
Síðustu daga hef ég bara notið þess að vera til, gert það sem mig hefur langað til sem hefur gert það að verkum að ég hef ekki hugmynd hvað klukkan er eða hvaða dagur er! Yndislegt líf :)
Í kvöld ætlar lítil stelpa að fá að gista hjá mér og á morgun ætlar hún svo í afmæli. Á meðan hún er í afmælinu ætla ég og Anna Kristrún að hjóla litla Eyjafjarðarhringinn.....svona í staðinn fyrir að taka þátt í Akureyrarhlaupinu! Já, mar verður að halda áfram að hreyfa sig í einn dag eins og brjálæðingur og gera svo ekki neitt í margar vikur á milli! Hentar mér allavega mjög vel :)
Svo er það ferðalagið sem ég er að fara í! Það verður örugglega svoldið strembið, en svona er planið:
Þriðjudagur: Flýg til Reykjavíkur
Miðvikudagur: Flýg til London
Fimmtudagur: Lestaferð til Loughborough
Föstudagur: Lestaferð til London
Laugardagur: Flýg til Danmerkur (Esbjerg)
Staldra aðeins við þar tek svo lestina til Randers þar sem ég staldra e-ð við og svo tek ég lest til Horsens þangað til ég flýg til Íslands frá Billund á laugardskvöldinu.
Þetta er svona gróflega planið....og mikið hlakka ég til :) Verður bara gaman :)
Jæja, ég ætla að fara í brunch til Stínu,
heyrumst
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hæ hæ Loksins komið að því, lokapunkturinn í mastersnáminu og heimsókn til Danmerkur. Frábært ég hlakka til að hitta þig.
kveðja Selma Björg
Elsku Valdís, góða ferð og skemmtun... þú tekur tannsa-verkefnið í nefið þarna úti á föstudaginn... hugsa til þín vinkona og takk fyrir að vera til :o) knús til þín frá mér, Elísa.
Gangi þér rosalega vel að verja verkefnið:) og skemmtu þér vel úti:)
við sjáumst í okóber:)
Góða ferð gordjöss.
Post a Comment