Hellú allir saman,
Úff hvað það er langt síðan ég hef bloggað! En eins og titillinn gefur kannski til kynna þá hef ég verið inní mínum helli síðan ég bloggaði síðast! Ég fór ekki í klippingu, skipti hvorki um föt né tyggjó í margar vikur, skegg var farið að vaxa í andlitið á mér og bananar út úr eyrunum! Næs, eh? En svona hafa vikurnar liðið hver á fætur annarri með auknum blaðsíðufjölda í lokaritgerðinni minni......svo það var allavega það jákvæða við þetta allt saman :) Klukkan 14.26 að staðartíma þann 2.september sl. lauk skrifum á lokaverkefninu mínu. Hún endaði í 98 bls. og 164 bls með viðaukum! Ég náttla dansaði þá stríðsdansinn út á palli þar sem pabbi kom labbandi á móti mér! 'ÉG ER BÚIN' kallaði ég í humátt að pabba sem svaraði að bragði....'Komdu þá út að tína ber'..............ég endurtek: 'Komdu þá út að tína ber!!!!!!' Ég hélt ég yrði ekki eldri! Eins og það væri það fyrsta sem mig langaði að gera eftir að hafa verið inní helli í 4 vikur! Ég hélt nú ekki, fór í hlaupagallann, brunaði útí Kjarna og tók einn léttan hring þar :) Bara gott :)
Ég er síðan búin að vera tjasla mér saman eftir þetta allt saman, fara í vax og klippingu og fer svo í húðhreinsun í næstu viku. Um helgina ætla ég svo að skella mér í borg óttans og taka þátt í afmælisþingi hjá Vinnuvistfræðifélaginu (Vinnís) á föstudaginn. Eftir það ætla ég að skella mér til Þorlákshafnar til Árnýjar og co. og knúsa strákana.....drekk örugglega e-ð að hvítvíni á meðan þeirri dvöl stendur :) Gaman að því :)
Annars er það að frétta að ég fékk ekki vinnuna hjá verkfræðistofunni sem hringdi í mig um daginn og ég fór í viðtal hjá. Það var vegna verkefnaskorts og gaf konan mér upp fullt af fyrirtækjum sem ég gæti leytað til vegna vinnu þar sem hún sagði: 'Það er nú ekki á hverju strái sem fólk með þinn bakgrunn er í leyt að vinnu' ....svo ég var nú bara ánægð að heyra það. Annars er ég nákvæmlega ekkert stressuð yfir vinnumálum og ætla bara að leyta aftur þegar ég er búin að fara í reisuna mína sem byrjar 19. sept nk. Þá flýg ég til UK og fæ að gista eina nótt hjá Sonju. Eftir það tek ég lest til Lofbró og gisti þar eina nótt. Ver verkefnið mitt þann 21.sept og fer strax aftur til London þegar sá horror er búinn. Gisti aftur eina nótt hjá Sonju og flýg svo til DK þar sem ég ætla hitta Selmu, Atla og krakkana; Hemma, Freyju og stelpurnar; Louisu, Lárus og sjónvarpið þeirra :) Hlakka ekkert smá til.....þetta verður bara stuð! Ég flýg svo aftur tilbaka 29.sept í svellkaldan raunveruleikann.
Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili
See you later, alligator ;)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hhahahahhah .....ad tina ber.......EINMITT......frabaert ad halda upp a svona rosalega merkilegan atburd med ad tina ber.......eitthvert kynslodabil tar a ferd!
Ja ja njottu bara lifsins :)
Hæ Valdís mín
TIL HAMINGJU MEÐ AÐ VERA BÚIN MEÐ VERKEFNIÐ..............úúúúúffffff, þvílkur léttir örugglega.
Hlakka annars alveg rosalega til þess að sjá þig, stefnir þú á að vera hjá okkur síðustu dagana??? því við förum líklegast til Köben 28-29 sept. Láttu mig vita :-)
Kveðja Louisa
Til hamingju með verkefnalokin:) Gangi þér vel að verja verkefnið og góða skemmtun úti:)
Heil og sæl Valdís mín,
innilega til hamingju með að vera búin....bara krúttleg viðbrögð hjá pabba þínum hehehheheh.
Njóttu þess að vera til, bið að heilsa heim.
Knús frá Láru, sem er að skrifa um Jesú og Íþróttaálfinn.
Post a Comment