Thursday, July 19, 2007

Súlur og sólbrennsla....

Á þriðjudaginn arkaði ég upp á Súlur....ekki í fyrsta skipti svo sem, en í fyrsta skipti sem það er klikkaðslega gott veður þarna uppi. Ég fór með Önnu Kristrúnu og við gátum bara setið uppi alveg heillengi því það blakti ekki hár á höfði....slíkt var lognið!

Hér sjáið þið myndir :)


En eins og yfirleitt er ekki allt tekið út með sældinni einni saman....ég kom niður svo þvílíkt sólbrennd að Sigga mágkona er búin að vera með Aloe Vera gelið á mér, núna þriðja daginn í röð...og ég er að fara í brúðkaup á laugardaginn!!! Æi, það skiptir engu, ég þekki hvort sem er engann þarna!!! Já, hann Hartmann er að fara gifta sig á laugardaginn svo ég ætla að skunda í borgina og taka þátt í gleðinni. Ég er víst búin að segja við veislustjórann að ég ætli að halda ræðu...en hún er nú ekki enn komin á blað! Sjáum til hvort andinn kemur ekki yfir mig!

Svo eru það vinnumálin. Verkfræðistofan hringdi sem sagt í mig í síðustu viku og vill fá mig í atvinnuviðtal. Ég þarf því að fara aftur suður í ágúst. Viðtalið verður þann 17.ágúst kl. 900....gangi mér vel!

Annars er ekkert að frétta af lokaverkefninu mínu......það gengur hvorki né rekur! Leiðbeinandi minn svarar mér ekki tölvupósti og ég hef ekki enn fundið "motivation" til að setjast niður og skrifa og skrifa og skrifa! Ef einhver hefur séð áhugahvötina mína á víðavangi þá má sá hinn sami hringja í mig eða koma henni til mín!


Jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra í bili......

Tjá, amigos :)

5 comments:

Anonymous said...

Duglegar:)
vona að andinn komi yfir þig fljótlega;)

Anonymous said...

Hellú

Langaði bara að þakka þér fyrir frábæran tíma á Bláu könnunni um daginn, það var æðislegt að sjá þig aftur. Hlakka svo bara til að sjá þig í sept.

Kveðja Louisa

Anonymous said...

Hér á bæ er líka verið að skrifa lokaritgerð, hvernig væri að kíkka í heimsókn þegar þú kemur í bæinn - gæti verið að við fyndum andann í sameiningu. Best að halda áfram að skrifa....nenniessuekki
kv, Lára lata

Anonymous said...

rosalega er þetta glataður leiðbeinandi.

ef þig vantar gistingu þá veistu hvar hana er að hafa.

Sonja Stelly said...

Ekki malid....vertu bara i bandi...tad vaeri heidur ad fa tig.