Hvað segist? Af mér er allt ágætt að frétta fyrir utan að leiðbeinandi minn í Bretlandi er með einhver leiðindi við mig. Hann segir að þar sem ég er búin með gagnaöflunina þá hljóti ég að vera með of lítið efni til að fjalla um! Mér finnst ég vera kafna í efni og er ekki byrjuð að greina gögnin sem er lang mesta vinnan. Ég er aðeins byrjuð að skrifa....komin með 3 bls! Það er allavega byrjun!!! Ég hafði samband við leiðbeinanda minn hér heima og hann var alveg sammála mér um að ég væri með nóg efni til að fjalla um...spurning hvað yfirvaldið segir nú þegar ég er búin að skrifa honum mail um hvað ég er með!
Ég er svo loksins að komast aftur á vinnumarkaðinn svona með haustinu. Fyrirtækið sem ég hafði pínu áhuga á að vinna hjá hefur ekki sýnt mér þann áhuga sem ég átti von á, svo ég nenni ekki að standa í þeim lengur. Reyndar var kosturinn við það fyrirtæki að ég hafði möguleika á að vera hér á Akureyri, en það þýðir víst lítið að tala um það þegar mar er að koma sér á framfæri.
Ég fékk svo skemmtilegan póst í síðustu viku....leiðbeinandi minn hér á Íslandi sendi mér hann, sem sagði að verkfræðistofa nokkur í Rvík hefði haft samband við hann til að fá símanúmerið mitt og netfang vegna vinnu!!! Hann sendi honum það að vísu ekki fyrr í gær svo ég bíð bara spennt yfir því. Allir að krossa fingur og tær fyrir mig - ok? Því þetta er nákvæmlega það sem ég vil gera og því ekki slæmt að byrja á því sem mann langar! En það hefur í för með sér að muni flytjast á suðurlandið....er að hugsa um að gerast gaflari ef útí það fer!
Svo er ég að skoða bíla til kaups. Hólmgeir bróðir er að hjálpa mér í því! Er búin að sjá einn sem mér líst rosalega vel á - Rav4....best að fara í bankabókina og telja peningana mína....NOT!!! En í fyrsta skipti á ævinni hef ég verið að velta fyrir mér að kaupa bíl sem ég á sjálf....svona sem ég á ein. Svo það gæti verið að þið farið að sjá mig þeytast um borg og bý á slyddujeppa (eins og pabbi kallar þá) á næstu dögum, vikum eða mánuðum...fylgist með því.
ja.is er að standa sig helv...vel! Ég fékk að vita það í gærkvöldið að ég er enn skráð í Mosó með heimilisfang hjá þeim.....og Skúli með mér.....sem er NB kallinn sem ég leigði íbúðina af!!! Til að fyrirbyggja allan misskilning og hafa það alveg á hreinu þá hef ég aldrei og mun aldrei búa með þessum manni!!!
En snúum okkur að einhverju skemmtilegu. Ég er alltaf að gleyma að segja ykkur frá einhverju. Um daginn gleymdi ég að segja ykkur frá því þegar ég gaf nokkrum bekkjarfélögum mínum Tópas skot að smakka....bretar eru ekki mikið fyrir lakkrís! En myndirnar tala sínu máli.......









3 comments:
Allt að gerast bara! Það verður gaman að fá þig hingað suður, þá getum við haldið heimsóknunum áfram. Ég lofa að það er ekki hægt að eyða eins miklum peningum hér í Þorlákshöfn og í Northampton :Þ
Krossa fingur og tær fyrir þig;)
meiru rugludallarnir þessir bretar, þýðir ekkert að vera að eyða Tópas skotum á þá, frekar á fólk sem kann gott að meta;) hehehe
Hæ hó!
Þetta er svakalega spennandi.....og suðurlandi er ekkert svo sæmt sko svona til að byrja með allavegana. Vona að þú fáir vinnuna og til hamingju með prófa árangurinn ;) Ég var einu sinni skráð í símaskránni með heimilisfang heima hjá fyrrverandi kærasta og kærustunni hans! Það var nú bara fyndið.......en hvað á þessi Skúli enga bræður eða frændur? Tékkaðu á því! Okei ég tek þá ekki tópas eða ópal skot með mér út fyrst þetta eru svona miklar kellingar þarna í Bretlandi!
Post a Comment