Monday, May 28, 2007

Survivor keppni

Þá er survivor keppnin byrjuð. Reyndar er ég bara að keppa við sjálfa mig um hvað ég kemst af með lítið af dóti næstu 2 vikurnar eða svo. Það er ekki hægt að segja annað en að það sé tómlegt hér á 39 Market Street, flat 8 og bergmál heyrist þegar ég ýti á takkana á lyklaborðinu.
Þegar ég kom hér 23.apríl 2006 var ég með eina stóra ferðatösku og skólatösku á bakinu með tölvu. Ég sendi svo sjálfri mér tvo kassa af bókum úr iðjuþjálfuninni.......Það sem ég fer heim með, er ca. 1/4 úr gámi, þ.e. 10 kassar, 3 ferðatöskur, 1 sófasett og 1 sjónvarp.....og það er ekki allt því ég þarf að senda einn kassa í viðbót áður en ég skila íbúðinni. Já, það hefur greinilega mikið verslað síðasta árið, enda komið svo að ég þurfi að leggjast upp á aldraða foreldra mína til koma lífi mínu aftur á rétta kjöl.....peningalega séð. En, það er nú alltaf gott að komast á Hótel Mömmu af og til, þó ég viti að pabbi er á fullu að skoða leiguhúsnæðisauglýsingarnar í Dagskránni....hmm, ætli ég eigi e-ð að taka þetta til mín?
Jæja, nú verð ég að halda áfram að læra fyrir prófin.....sé nú ekki alveg hvernig ég ætla að komast í gegnum þau, ef ég á að vera alveg hreinskilin....en ég þarf þá bara að takast á við hið óþekkta eins og sannur survivor, eh?

3 comments:

Anonymous said...

Hver eru svo verðlaunin???? þú verður að verðlauna þig einhvern vegin fyrir þetta!!! spurning um að versla aðeins meira?? hehe:)

Anonymous said...

Já, það er satt hjá þér Björg, ég verð að að verðlauna mig fyrir þetta....ég var ekki farin að hugsa fyrir því! En mér líst vel á að verðlauna mig með meiri verslun...ætla taka það til mín og gera e-ð í þeim málum. Spurning hvað það á að vera samt? Mig vantar ný ilmvötn, skó, boli, peysur, sokka og svona mætti lengi telja....ætla fara strax í málið þegar prófin eru búin og ég búin að jafna mig eftir prófdrykkjuna sem verður tekin með trukki kl. 11 á miðvikudaginn eftir viku!
Kveðja og takk fyrir góðar ábendingar :)
Brása

Anonymous said...

Hæ hæ Valdís

Það er langt síðan ég hef farið inn á síðuna þína og komst svo að því að þú ert búin að búa til nýja síðu, ekki verra. Mér finnst myndin af þér BEST, hehehe ekkert smá góð.
En ég er á kafi í verkefnavinnu og próflestri og get ekki beðið þangað til þetta er búið.
Ég vona að ég eigi eftir að hitta á þig í sumar, þó það væri ekki nema í stuttan tíma, það er eiginlega ekki annað hægt.
En gangi þér vel í prófunum og að flytja heim!!!!

Knús og kossar

Louisa Sif