Núna er ég búin að vera í vinnunni í heila viku og líkar alveg frábærlega vel :) Fjölbreytt verkefni framundan og mikill lærdómur í sambandi við útboð á verkefnum, pælingar í kostnaði, námskeið og alls konar dót sem mig óraði ekki fyrir að ég myndi einhvern tíma koma nálægt.
En svona er lífið.....það tekur alls konar óvæntar stefnur þegar maður á minnst von á. Fjölskyldan fékk líka aðeins að finna fyrir því í vikunni þar sem pabbi minn liggur nú á sjúkrahúsi og bíður aðgerðar á hjarta. Sá ferill mun taka 3-4 mánuði og megum við þakka fyrir að hjartalæknir hans á Akureyri fylgist vel með honum að ekki er búið að fara verr. Annars vil ég ekki ræða þetta frekar hér á blogginu mínu, þar sem mér finnst það óviðeigandi gagnvart öllum.
Ég vil því enda þetta blogg á því að vitna í vinkonu mína,
Gangið á Guðs vegum....
Thursday, November 8, 2007
Subscribe to:
Posts (Atom)