Já, það er orðið ljóst að kellingin er að flytja í borgina. Ég er komin með vinnu hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen (VST) og byrja að vinna á fimmtudaginn næsta!!
Nú er allt að gerast, ég er að kaupa mér bíl í dag og svo er ég á fullu að leyta mér að íbúð í borginni til kaups......er samt pínu efins hvort ég eigi að kaupa strax......er að hugsa um að sjá til hvernig mér líkar vinnan fyrst. Er það ekki skynsamlegt???
Annars var ég að segja Kristíönu frá því að nú væri ég að flytja til Reykjavíkur og viðbrögðin stóðu ekki á sér hjá dömunni: "Af hverju þarft þú alltaf að vera flytja svona?" Já, þegar stórt er spurt er lítið um svör! Hún hafði nú líka áhyggjur af því að ég þekkti engan í Rvík, en ég gat nú talið nokkra upp sem eru á höfuðborgarsvæðinu :)
Ég, mamma og pabbi erum svo búin að panta okkur flug út í desember. Förum 12. des og verðum alveg til 18. des. Útskriftin er 17. des. Við mamma höfum mestar áhyggjur af pabba því hann nennir örugglega ekki að labba með okkur í allar búðirnar sem við "þurfum" að fara í.
Ég lýsi því hér með eftir karlmanni sem er til í að fara til Bretlands á þessum tíma og sitja á pöbb með pabba meðan við mamma verslum. Pabbi er einstaklega skemmtilegur maður, orðinn soldið gráhærður og hefur gaman af tækjum og tólum. Hann hefur ferðast mikið og elskar jólin, því þá fær hann að skreyta húsið sitt og trén í garðinum með jólaljósunum sínum auk annarra skreytinga!!
Monday, October 29, 2007
Friday, October 5, 2007
ÉG!!
- Ég á ekki bíl
- Ég á ekki íbúð
- Ég á ekki barn
- Ég á ekki kærasta
- Ég á ekki einu sinni afmæli.......nema á fjögurra ára fresti!!!
- Ég er kona
- Ég er atvinnulaus
- Ég er á fertugsaldri
- Ég er einhleyp
sem bý í foreldrahúsum!!
Whatta catch, eh????
Wednesday, October 3, 2007
Tuesday, October 2, 2007
Það sem framundan er......
- Í dag er ár síðan ég settist á skólabekk í Bretlandi
- Í dag hef ég legið í leti
- Hvað ætli ég verði að gera eftir eitt ár???? Spennandi
Ég veit allavega hvað ég er að fara gera í október:
- Um helgina er reunion hjá iðju-bekknum mínum í Borgarfirði sem ég ætla að taka þátt í þar sem ég missti af því síðast
- Skunda svo í borgina til að fara í atvinnuviðtal
- Verð með Hafnarfjarðargellurnar helgina þar á eftir
- Kem norður aftur 14. okt
- Stefni á að fara á Neskaupstað til Elísu í rauðvín helgina 19.-21. okt
Á meðan á dvöl minni stendur í borginni (sem verður alveg vika) ætla ég að reyna hitta mikið af fólki, borða góðan mat........eða nei! Ég er víst byrjuð á danska!!!! Æi, ég verð þá bara annaðhvort að sleppa því eða byrja bara seinna!!!.....og fá vinnu!
See you :)
Subscribe to:
Posts (Atom)