Friday, September 21, 2007

Vornin buin........jiha :)

Hae, hae!

I tessum toludum ordum var eg ad klara ad verja verkefnid sem gekk vonum framar :) Eg var gjorsamlega ad farast ur stressi adur en eg gekk inn og vissi ekkert hverju eg atti von a. En, eg gat svarad ollum spurningunum med glaesibrag og teir sogdu vid mig ad eg tyrfti ekki ad ahyggjur af neinu:) Eg get tvi farid ad slaka a og kallad mig Meistari Valdis :) Otrulegt en satt.

Eg sit her a netkaffihusi i Lofbro og bid eftir ad lestin min til London fari. Eg aetla nuna ad fara i Virgin og kaupa mer e-d af diskum og svo verd eg nattla ad koma vid i samlokusjoppunni minni og fa mer samloku. Eg verd nu samt ad jata tad ad tegar eg labbadi framhja ibudinni minni ta langadi mig ad fara grata.......eg sakna UK svo mikid!!! En, eg aetla pottthett ad flytja hingad einu sinni enn!! Bara spurning um hvenaer!

Jaeja, aetla ekki ad hafa tetta lengra i bili.

Takk til allra sem hugsudu til min a medan a tessu stod......tad greinilega virkadi :)
Sjaumst eftir ruma viku tegar eg kem aftur til Islands :)
Meistari Valdis ;)

Friday, September 14, 2007

Er að fara í ferðalag......jibbí!

Hellú!

Síðustu daga hef ég bara notið þess að vera til, gert það sem mig hefur langað til sem hefur gert það að verkum að ég hef ekki hugmynd hvað klukkan er eða hvaða dagur er! Yndislegt líf :)

Í kvöld ætlar lítil stelpa að fá að gista hjá mér og á morgun ætlar hún svo í afmæli. Á meðan hún er í afmælinu ætla ég og Anna Kristrún að hjóla litla Eyjafjarðarhringinn.....svona í staðinn fyrir að taka þátt í Akureyrarhlaupinu! Já, mar verður að halda áfram að hreyfa sig í einn dag eins og brjálæðingur og gera svo ekki neitt í margar vikur á milli! Hentar mér allavega mjög vel :)

Svo er það ferðalagið sem ég er að fara í! Það verður örugglega svoldið strembið, en svona er planið:

Þriðjudagur: Flýg til Reykjavíkur
Miðvikudagur: Flýg til London
Fimmtudagur: Lestaferð til Loughborough
Föstudagur: Lestaferð til London
Laugardagur: Flýg til Danmerkur (Esbjerg)
Staldra aðeins við þar tek svo lestina til Randers þar sem ég staldra e-ð við og svo tek ég lest til Horsens þangað til ég flýg til Íslands frá Billund á laugardskvöldinu.

Þetta er svona gróflega planið....og mikið hlakka ég til :) Verður bara gaman :)

Jæja, ég ætla að fara í brunch til Stínu,
heyrumst

Wednesday, September 5, 2007

The caveman is back!!!

Hellú allir saman,

Úff hvað það er langt síðan ég hef bloggað! En eins og titillinn gefur kannski til kynna þá hef ég verið inní mínum helli síðan ég bloggaði síðast! Ég fór ekki í klippingu, skipti hvorki um föt né tyggjó í margar vikur, skegg var farið að vaxa í andlitið á mér og bananar út úr eyrunum! Næs, eh? En svona hafa vikurnar liðið hver á fætur annarri með auknum blaðsíðufjölda í lokaritgerðinni minni......svo það var allavega það jákvæða við þetta allt saman :) Klukkan 14.26 að staðartíma þann 2.september sl. lauk skrifum á lokaverkefninu mínu. Hún endaði í 98 bls. og 164 bls með viðaukum! Ég náttla dansaði þá stríðsdansinn út á palli þar sem pabbi kom labbandi á móti mér! 'ÉG ER BÚIN' kallaði ég í humátt að pabba sem svaraði að bragði....'Komdu þá út að tína ber'..............ég endurtek: 'Komdu þá út að tína ber!!!!!!' Ég hélt ég yrði ekki eldri! Eins og það væri það fyrsta sem mig langaði að gera eftir að hafa verið inní helli í 4 vikur! Ég hélt nú ekki, fór í hlaupagallann, brunaði útí Kjarna og tók einn léttan hring þar :) Bara gott :)
Ég er síðan búin að vera tjasla mér saman eftir þetta allt saman, fara í vax og klippingu og fer svo í húðhreinsun í næstu viku. Um helgina ætla ég svo að skella mér í borg óttans og taka þátt í afmælisþingi hjá Vinnuvistfræðifélaginu (Vinnís) á föstudaginn. Eftir það ætla ég að skella mér til Þorlákshafnar til Árnýjar og co. og knúsa strákana.....drekk örugglega e-ð að hvítvíni á meðan þeirri dvöl stendur :) Gaman að því :)
Annars er það að frétta að ég fékk ekki vinnuna hjá verkfræðistofunni sem hringdi í mig um daginn og ég fór í viðtal hjá. Það var vegna verkefnaskorts og gaf konan mér upp fullt af fyrirtækjum sem ég gæti leytað til vegna vinnu þar sem hún sagði: 'Það er nú ekki á hverju strái sem fólk með þinn bakgrunn er í leyt að vinnu' ....svo ég var nú bara ánægð að heyra það. Annars er ég nákvæmlega ekkert stressuð yfir vinnumálum og ætla bara að leyta aftur þegar ég er búin að fara í reisuna mína sem byrjar 19. sept nk. Þá flýg ég til UK og fæ að gista eina nótt hjá Sonju. Eftir það tek ég lest til Lofbró og gisti þar eina nótt. Ver verkefnið mitt þann 21.sept og fer strax aftur til London þegar sá horror er búinn. Gisti aftur eina nótt hjá Sonju og flýg svo til DK þar sem ég ætla hitta Selmu, Atla og krakkana; Hemma, Freyju og stelpurnar; Louisu, Lárus og sjónvarpið þeirra :) Hlakka ekkert smá til.....þetta verður bara stuð! Ég flýg svo aftur tilbaka 29.sept í svellkaldan raunveruleikann.
Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili
See you later, alligator ;)