Thursday, July 19, 2007

Súlur og sólbrennsla....

Á þriðjudaginn arkaði ég upp á Súlur....ekki í fyrsta skipti svo sem, en í fyrsta skipti sem það er klikkaðslega gott veður þarna uppi. Ég fór með Önnu Kristrúnu og við gátum bara setið uppi alveg heillengi því það blakti ekki hár á höfði....slíkt var lognið!

Hér sjáið þið myndir :)


En eins og yfirleitt er ekki allt tekið út með sældinni einni saman....ég kom niður svo þvílíkt sólbrennd að Sigga mágkona er búin að vera með Aloe Vera gelið á mér, núna þriðja daginn í röð...og ég er að fara í brúðkaup á laugardaginn!!! Æi, það skiptir engu, ég þekki hvort sem er engann þarna!!! Já, hann Hartmann er að fara gifta sig á laugardaginn svo ég ætla að skunda í borgina og taka þátt í gleðinni. Ég er víst búin að segja við veislustjórann að ég ætli að halda ræðu...en hún er nú ekki enn komin á blað! Sjáum til hvort andinn kemur ekki yfir mig!

Svo eru það vinnumálin. Verkfræðistofan hringdi sem sagt í mig í síðustu viku og vill fá mig í atvinnuviðtal. Ég þarf því að fara aftur suður í ágúst. Viðtalið verður þann 17.ágúst kl. 900....gangi mér vel!

Annars er ekkert að frétta af lokaverkefninu mínu......það gengur hvorki né rekur! Leiðbeinandi minn svarar mér ekki tölvupósti og ég hef ekki enn fundið "motivation" til að setjast niður og skrifa og skrifa og skrifa! Ef einhver hefur séð áhugahvötina mína á víðavangi þá má sá hinn sami hringja í mig eða koma henni til mín!


Jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra í bili......

Tjá, amigos :)

Wednesday, July 11, 2007

Lokaverkefnið, vinna, nýr bíll, www.ja.is og Tópas skot!

Hello!
Hvað segist? Af mér er allt ágætt að frétta fyrir utan að leiðbeinandi minn í Bretlandi er með einhver leiðindi við mig. Hann segir að þar sem ég er búin með gagnaöflunina þá hljóti ég að vera með of lítið efni til að fjalla um! Mér finnst ég vera kafna í efni og er ekki byrjuð að greina gögnin sem er lang mesta vinnan. Ég er aðeins byrjuð að skrifa....komin með 3 bls! Það er allavega byrjun!!! Ég hafði samband við leiðbeinanda minn hér heima og hann var alveg sammála mér um að ég væri með nóg efni til að fjalla um...spurning hvað yfirvaldið segir nú þegar ég er búin að skrifa honum mail um hvað ég er með!

Ég er svo loksins að komast aftur á vinnumarkaðinn svona með haustinu. Fyrirtækið sem ég hafði pínu áhuga á að vinna hjá hefur ekki sýnt mér þann áhuga sem ég átti von á, svo ég nenni ekki að standa í þeim lengur. Reyndar var kosturinn við það fyrirtæki að ég hafði möguleika á að vera hér á Akureyri, en það þýðir víst lítið að tala um það þegar mar er að koma sér á framfæri.
Ég fékk svo skemmtilegan póst í síðustu viku....leiðbeinandi minn hér á Íslandi sendi mér hann, sem sagði að verkfræðistofa nokkur í Rvík hefði haft samband við hann til að fá símanúmerið mitt og netfang vegna vinnu!!! Hann sendi honum það að vísu ekki fyrr í gær svo ég bíð bara spennt yfir því. Allir að krossa fingur og tær fyrir mig - ok? Því þetta er nákvæmlega það sem ég vil gera og því ekki slæmt að byrja á því sem mann langar! En það hefur í för með sér að muni flytjast á suðurlandið....er að hugsa um að gerast gaflari ef útí það fer!

Svo er ég að skoða bíla til kaups. Hólmgeir bróðir er að hjálpa mér í því! Er búin að sjá einn sem mér líst rosalega vel á - Rav4....best að fara í bankabókina og telja peningana mína....NOT!!! En í fyrsta skipti á ævinni hef ég verið að velta fyrir mér að kaupa bíl sem ég á sjálf....svona sem ég á ein. Svo það gæti verið að þið farið að sjá mig þeytast um borg og bý á slyddujeppa (eins og pabbi kallar þá) á næstu dögum, vikum eða mánuðum...fylgist með því.

ja.is er að standa sig helv...vel! Ég fékk að vita það í gærkvöldið að ég er enn skráð í Mosó með heimilisfang hjá þeim.....og Skúli með mér.....sem er NB kallinn sem ég leigði íbúðina af!!! Til að fyrirbyggja allan misskilning og hafa það alveg á hreinu þá hef ég aldrei og mun aldrei búa með þessum manni!!!

En snúum okkur að einhverju skemmtilegu. Ég er alltaf að gleyma að segja ykkur frá einhverju. Um daginn gleymdi ég að segja ykkur frá því þegar ég gaf nokkrum bekkjarfélögum mínum Tópas skot að smakka....bretar eru ekki mikið fyrir lakkrís! En myndirnar tala sínu máli.......



















Allt er gott sem endar vel.....

Wednesday, July 4, 2007

2/3 Vinnuvistfræðingur.....jibbíííí!

Hey,
Hvað segist eillega í fréttum?

Af mér er allt gott að frétta, ég stóðst öll prófin með glæsibrag og get því næstum því alveg farið að kalla mig Vinnuvistfræðing.....sem er náttla bara gaman þegar mar hefur lagt hart að sér til að ná þeim titli.

Ég ætlaði svo alltaf að sýna ykkur myndir frá síðasta sólarhringnum mínum í Lofbró....ég skilaði íbúðinni á laugardeginum og fór heim til Annabelle og Dave og gisti hjá þeim eina nótt......og ég get sagt að það var upplifun!
Annabelle sótti mig um fégur leytið og við brunuðum útí sveit þar sem þau búa. Þau voru náttla búin að fara til slátrarans á horninu og kaupa pylsur og lamb á grillið um kvöldið. En fyrst þurftum við náttla að byrja á því að kíkja á pöbbinn og væta kverkarnar áður en hafist var handa við eldamennskuna. Það var geggjað veður og við sátum úti við "canal" bakkann þar sem bátar af öllum stærðum og gerðum sigldu framhjá.

Svo var arkað heim á leið og kveikt upp í grillinu.......

.......og á þessu heimili er allur maturinn kláraður, eins og sjá má á þessum myndum.......





Þetta eru náttúrulega bara snillingar dauðans.....og mikið sakna ég þeirra!

Morguninn eftir var svo líka tekinn með pompi og parkt þar sem Dave fór á kostum í eldhúsinu, steikti bacon, sveppi og egg, ristaði brauð og hitaði baunir.....og OMG hvað þessi morgunmatur stóð lengi með mér á ferðalaginu heim......


....svona mun ég alltaf fá mér þegar ég þarf að ferðast langt og hef ekki tíma til að borða á leiðinni!!

Jæja, þá er best að fara hætta í bili.....ætla bjóða mömmu á Greifann í tilefni dagsins svo pabbi geti farið í golf í friði....

See you later....alligator!