Monday, May 28, 2007

Survivor keppni

Þá er survivor keppnin byrjuð. Reyndar er ég bara að keppa við sjálfa mig um hvað ég kemst af með lítið af dóti næstu 2 vikurnar eða svo. Það er ekki hægt að segja annað en að það sé tómlegt hér á 39 Market Street, flat 8 og bergmál heyrist þegar ég ýti á takkana á lyklaborðinu.
Þegar ég kom hér 23.apríl 2006 var ég með eina stóra ferðatösku og skólatösku á bakinu með tölvu. Ég sendi svo sjálfri mér tvo kassa af bókum úr iðjuþjálfuninni.......Það sem ég fer heim með, er ca. 1/4 úr gámi, þ.e. 10 kassar, 3 ferðatöskur, 1 sófasett og 1 sjónvarp.....og það er ekki allt því ég þarf að senda einn kassa í viðbót áður en ég skila íbúðinni. Já, það hefur greinilega mikið verslað síðasta árið, enda komið svo að ég þurfi að leggjast upp á aldraða foreldra mína til koma lífi mínu aftur á rétta kjöl.....peningalega séð. En, það er nú alltaf gott að komast á Hótel Mömmu af og til, þó ég viti að pabbi er á fullu að skoða leiguhúsnæðisauglýsingarnar í Dagskránni....hmm, ætli ég eigi e-ð að taka þetta til mín?
Jæja, nú verð ég að halda áfram að læra fyrir prófin.....sé nú ekki alveg hvernig ég ætla að komast í gegnum þau, ef ég á að vera alveg hreinskilin....en ég þarf þá bara að takast á við hið óþekkta eins og sannur survivor, eh?

Saturday, May 26, 2007

Kaffivélin mín:)



Svona lítur hún út, en ég get því miður ekki sett inn mynd af sófasettinu mínu!

Má bjóða þér upp á kaffi?

Tjá í bili.....

Tuesday, May 22, 2007

Comment

Hæ!
Mér var bent á að ekki væri hægt að kommenta á síðuna nema logga sig inn. En ég er búin að laga það og nú getur hver sem er kommentað.
Svo nú er bara að kommenta, segja hæ, bæ, gaman að heyra í þér, hlakka til að fá þig aftur alkomna til Íslands, gangi þér vel........eða bara hvað sem ykkur dettur í hug :)

Later
VBÞ

Sunday, May 20, 2007

Nýjustu kaupin....




Hér sjáiði hringinn sem ég keypti mér í London...flottur, eh? Spurning um að gylla hann svo ég verði 100% ánægð!
Næstu tvær myndir eru svo af Japönskum Kimono sem ég keypti á Ebay, en ég fékk vitlausan og nenni ekki að standa í því að skipta svo hann er til sölu!!

Eigið góða viku.....ég veit að mín verður vitlaus, því ég þarf að:
Mánudagur:
Halda fyrirlestur
Klára eitt verkefni
Gera spurningar klárar fyrir kennarann að svara mér fyrir vegna prófsins
Þriðjudagur:
Skóli frá 9-5
Skipuleggja upplestrarfrí fyrir prófin
Miðvikudagur:
Lesa fyrir próf
Fimmtudagur:
Fundur vegna lokaverkefnis
Breyta flugmiðanum heim
Panta lest
Gera nýja umsókn fyrir lokaverkefnið því það hefur breyst
Fylla út búslóðaflutningspappíra
Pakka niður í kassa
Föstudagur:
Þór sækir dótið mitt
Lesa fyrir próf þangað til 4.júní......

Until then,
chiao amigos

Saturday, May 19, 2007

Nýr heimur

Ákvað að skipta um blogg heim þar sem mér fannst leiðinlegt að geta ekki sett inn myndir nema með brasi.

Heyri í ykkur seinna,

Breska-Brása.....bráðum samt Íslenska-Brása!