Thursday, November 8, 2007

"Nýja lífið"

Núna er ég búin að vera í vinnunni í heila viku og líkar alveg frábærlega vel :) Fjölbreytt verkefni framundan og mikill lærdómur í sambandi við útboð á verkefnum, pælingar í kostnaði, námskeið og alls konar dót sem mig óraði ekki fyrir að ég myndi einhvern tíma koma nálægt.
En svona er lífið.....það tekur alls konar óvæntar stefnur þegar maður á minnst von á. Fjölskyldan fékk líka aðeins að finna fyrir því í vikunni þar sem pabbi minn liggur nú á sjúkrahúsi og bíður aðgerðar á hjarta. Sá ferill mun taka 3-4 mánuði og megum við þakka fyrir að hjartalæknir hans á Akureyri fylgist vel með honum að ekki er búið að fara verr. Annars vil ég ekki ræða þetta frekar hér á blogginu mínu, þar sem mér finnst það óviðeigandi gagnvart öllum.
Ég vil því enda þetta blogg á því að vitna í vinkonu mína,
Gangið á Guðs vegum....

Monday, October 29, 2007

Kellingin að flytja......

Já, það er orðið ljóst að kellingin er að flytja í borgina. Ég er komin með vinnu hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen (VST) og byrja að vinna á fimmtudaginn næsta!!
Nú er allt að gerast, ég er að kaupa mér bíl í dag og svo er ég á fullu að leyta mér að íbúð í borginni til kaups......er samt pínu efins hvort ég eigi að kaupa strax......er að hugsa um að sjá til hvernig mér líkar vinnan fyrst. Er það ekki skynsamlegt???
Annars var ég að segja Kristíönu frá því að nú væri ég að flytja til Reykjavíkur og viðbrögðin stóðu ekki á sér hjá dömunni: "Af hverju þarft þú alltaf að vera flytja svona?" Já, þegar stórt er spurt er lítið um svör! Hún hafði nú líka áhyggjur af því að ég þekkti engan í Rvík, en ég gat nú talið nokkra upp sem eru á höfuðborgarsvæðinu :)

Ég, mamma og pabbi erum svo búin að panta okkur flug út í desember. Förum 12. des og verðum alveg til 18. des. Útskriftin er 17. des. Við mamma höfum mestar áhyggjur af pabba því hann nennir örugglega ekki að labba með okkur í allar búðirnar sem við "þurfum" að fara í.

Ég lýsi því hér með eftir karlmanni sem er til í að fara til Bretlands á þessum tíma og sitja á pöbb með pabba meðan við mamma verslum. Pabbi er einstaklega skemmtilegur maður, orðinn soldið gráhærður og hefur gaman af tækjum og tólum. Hann hefur ferðast mikið og elskar jólin, því þá fær hann að skreyta húsið sitt og trén í garðinum með jólaljósunum sínum auk annarra skreytinga!!

Friday, October 5, 2007

ÉG!!

  • Ég á ekki bíl
  • Ég á ekki íbúð
  • Ég á ekki barn
  • Ég á ekki kærasta
  • Ég á ekki einu sinni afmæli.......nema á fjögurra ára fresti!!!

  • Ég er kona
  • Ég er atvinnulaus
  • Ég er á fertugsaldri
  • Ég er einhleyp

sem bý í foreldrahúsum!!

Whatta catch, eh????

Wednesday, October 3, 2007

Kíkið á þetta.....

Svona er mar nú orðinn frægur!!!

www.vinnis.is

Tuesday, October 2, 2007

Það sem framundan er......

  • Í dag er ár síðan ég settist á skólabekk í Bretlandi
  • Í dag hef ég legið í leti
  • Hvað ætli ég verði að gera eftir eitt ár???? Spennandi

Ég veit allavega hvað ég er að fara gera í október:

  1. Um helgina er reunion hjá iðju-bekknum mínum í Borgarfirði sem ég ætla að taka þátt í þar sem ég missti af því síðast
  2. Skunda svo í borgina til að fara í atvinnuviðtal
  3. Verð með Hafnarfjarðargellurnar helgina þar á eftir
  4. Kem norður aftur 14. okt
  5. Stefni á að fara á Neskaupstað til Elísu í rauðvín helgina 19.-21. okt

Á meðan á dvöl minni stendur í borginni (sem verður alveg vika) ætla ég að reyna hitta mikið af fólki, borða góðan mat........eða nei! Ég er víst byrjuð á danska!!!! Æi, ég verð þá bara annaðhvort að sleppa því eða byrja bara seinna!!!.....og fá vinnu!

See you :)

Friday, September 21, 2007

Vornin buin........jiha :)

Hae, hae!

I tessum toludum ordum var eg ad klara ad verja verkefnid sem gekk vonum framar :) Eg var gjorsamlega ad farast ur stressi adur en eg gekk inn og vissi ekkert hverju eg atti von a. En, eg gat svarad ollum spurningunum med glaesibrag og teir sogdu vid mig ad eg tyrfti ekki ad ahyggjur af neinu:) Eg get tvi farid ad slaka a og kallad mig Meistari Valdis :) Otrulegt en satt.

Eg sit her a netkaffihusi i Lofbro og bid eftir ad lestin min til London fari. Eg aetla nuna ad fara i Virgin og kaupa mer e-d af diskum og svo verd eg nattla ad koma vid i samlokusjoppunni minni og fa mer samloku. Eg verd nu samt ad jata tad ad tegar eg labbadi framhja ibudinni minni ta langadi mig ad fara grata.......eg sakna UK svo mikid!!! En, eg aetla pottthett ad flytja hingad einu sinni enn!! Bara spurning um hvenaer!

Jaeja, aetla ekki ad hafa tetta lengra i bili.

Takk til allra sem hugsudu til min a medan a tessu stod......tad greinilega virkadi :)
Sjaumst eftir ruma viku tegar eg kem aftur til Islands :)
Meistari Valdis ;)

Friday, September 14, 2007

Er að fara í ferðalag......jibbí!

Hellú!

Síðustu daga hef ég bara notið þess að vera til, gert það sem mig hefur langað til sem hefur gert það að verkum að ég hef ekki hugmynd hvað klukkan er eða hvaða dagur er! Yndislegt líf :)

Í kvöld ætlar lítil stelpa að fá að gista hjá mér og á morgun ætlar hún svo í afmæli. Á meðan hún er í afmælinu ætla ég og Anna Kristrún að hjóla litla Eyjafjarðarhringinn.....svona í staðinn fyrir að taka þátt í Akureyrarhlaupinu! Já, mar verður að halda áfram að hreyfa sig í einn dag eins og brjálæðingur og gera svo ekki neitt í margar vikur á milli! Hentar mér allavega mjög vel :)

Svo er það ferðalagið sem ég er að fara í! Það verður örugglega svoldið strembið, en svona er planið:

Þriðjudagur: Flýg til Reykjavíkur
Miðvikudagur: Flýg til London
Fimmtudagur: Lestaferð til Loughborough
Föstudagur: Lestaferð til London
Laugardagur: Flýg til Danmerkur (Esbjerg)
Staldra aðeins við þar tek svo lestina til Randers þar sem ég staldra e-ð við og svo tek ég lest til Horsens þangað til ég flýg til Íslands frá Billund á laugardskvöldinu.

Þetta er svona gróflega planið....og mikið hlakka ég til :) Verður bara gaman :)

Jæja, ég ætla að fara í brunch til Stínu,
heyrumst